Beint í efni
Sitjandi manneskjur þar sem mynd er tekin ofan frá
Um Visku

Fag­hóp­ar inn­an Visku

Faghópar Visku vinna að því að styrkja stöðu sinnar fagstéttar, efla tengslanet og stuðla að aukinni þekkingu og framþróun hver á sínu sérsviði.

Fag­hóp­ar inn­an Visku

  • Fag­hóp­ur arki­tekta

    Störf arkitekta spanna vítt svið, allt frá skipulagsgerð og hönnun mannvirkja til kennslu og rannsókna. Arkitektar í Visku geta skráð sig í faghóp arkitekta.

    Lesa nánar
  • Fag­hóp­ur djákna

    Djáknar eru vígðir af biskupi og sinna fjölþættri kærleiksþjónustu. Djáknar í Visku geta skráð sig í faghóp djákna.

    Lesa nánar
  • Fag­hóp­ur fjöl­skyldu­fræð­inga

    Fjölskyldumeðferð er árangursríkt meðferðarúrræði þar sem tekið er mið af fjölskyldunni sem heild og velferð hennar höfð að leiðarljósi. Fjölskyldufræðingar í Visku geta skráð sig í faghóp fjölskyldufræðinga.

    Lesa nánar
  • Fag­hóp­ur fræða­fólks sem starf­ar sjálf­stætt

    Starf fræðafólks er fjölbreytt, það stundar rannsóknir, stundakennslu, handritagerð, ljósvakamiðlun, meðal annars. Sjálfstætt starfandi fræðafólk í Visku getur skráð sig í faghóp fræðafólks sem starfar sjálfstætt.

    Lesa nánar
  • Fag­hóp­ur list­með­ferð­ar­fræð­inga

    Listmeðferðarfræðingar veita meðferð sem byggir á sálfræðikenningum og myndsköpun. Listmeðferðarfræðingar í Visku geta skráð sig í faghóp listmeðferðarfræðinga.

    Lesa nánar
  • Fag­hóp­ur íþrótta­fræð­inga

    Íþróttafræðingar hafa að leiðarljósi að bæta heilsu fólks, fyrirbyggja sjúkdóma og aðstoða einstaklinga við að ná bata eftir veikindi. Íþróttafræðingar í Visku geta skráð sig í faghóp íþróttafræðinga.

    Lesa nánar
  • Fag­hóp­ur mynd­lista­fólks

    Tómstundastarf gegnir mikilvægu menningar- og uppeldishlutverki í nútímasamfélagi. Fagfólk í tómstundastarfi í Visku geta skráð sig í faghóp tómstunda- og félagsmálafræðinga og annars fagfólks í tómstundastarfi.

    Lesa nánar
  • Fag­hóp­ur safna­fólks

    Safnafólk er fólk sem starfar á söfnum landsins eða hefur menntað sig í safnafræðum. Safnafólk í Visku getur skráð sig í faghóp safnafólks.

    Lesa nánar
  • Fag­hóp­ur tákn­mál­stúlka

    Táknmálstúlkar vinna við að túlka við allar aðstæður daglegs lífs. Táknmálstúlkar í Visku geta skráð sig í faghóp táknmálstúlka.

    Lesa nánar
  • Fag­hóp­ur tal­meina­fræð­inga

    Talmeinafræðingar starfa í leikskólum, skólum, á sjúkrahúsum, endurhæfingarstöðvum, greiningarteymum og á eigin stofum. Talmeinafræðingar í Visku geta skráð sig í faghóp talmeinafræðinga.

    Lesa nánar
  • Fag­hóp­ur tóm­stunda- og fé­lags­mála­fræð­inga og ann­ars fag­fólks í tóm­stund­astarfi

    Tómstundastarf gegnir mikilvægu menningar- og uppeldishlutverki í nútímasamfélagi. Fagfólk í tómstundastarfi í Visku geta skráð sig í faghóp tómstunda- og félagsmálafræðinga og annars fagfólks í tómstundastarfi.

    Lesa nánar