Reglur um félagsnet
Félagsnet Visku eru sett á fót til að styrkja stöðu þess félagsfólks sem tilheyrir þeim, efla tengslanet og stuðla að aukinni þekkingu og framþróun á sér- eða áhugasviði þeirra. Félagsnet bera ábyrgð á að halda utan um eigin starfsemi í samvinnu við skrifstofu Visku.
Formaður Visku boðar a.m.k. árlega til fulltrúaráðsfundar, samkvæmt lögum félagsins, þar sem hvert félagsnet á fulltrúa ásamt fulltrúum kjaradeilda og LÍS. Fulltrúaráðsfundir eru vettvangur fyrir umræðu, samræmingu og upplýsingamiðlun milli félagsneta og er fulltrúaráð stjórn félagsins til ráðgjafar í stefnumótandi málum. Þóknun fyrir setu á fulltrúaráðsfundum er greidd samkvæmt þóknunarreglum félagsins. Formaður getur kallað til fundar oftar ef þörf krefur og boðið fleirum á fundi fulltrúaráðs.
Skilyrði félagsneta
- Einungis félagsfólki í Visku er heimilt að stofna félagsnet og vera aðilar að félagsneti.
- Nafn félagsnets, skráð lýsing og markmið þess eru til birtingar á vefsíðu Visku.
- Valinn er fulltrúi félagsnets, sem er félagi í Visku, og tekur sæti á fulltrúaráðsfundum Visku.
- Tilkynna þarf formanni Visku um stofnun félagsnets sem leggur málið til afgreiðslu stjórnar Visku.
- Félagsnet mega ekki koma fram undir merkjum Visku án þess að hafa fengið til þess samþykki skrifstofu félagsins.
- Félagsneti ber að tilkynna skrifstofu Visku um breytingar á fulltrúa sínum í fulltrúaráði.
- Stjórn Visku getur ákveðið að leggja félagsnet niður t.d. ef félagsnet sendir ekki fulltrúa á fulltrúaráðsfund Visku tvö ár í röð.
Þjónusta Visku
- Viska styrkir fræðslustarfsemi félagsneta með allt að 100.000 kr. árlegum styrk fyrir fundaraðstöðu, veitingar og fyrirlesara á viðburðum, að fengnu samþykki skrifstofu félagsins og fyrir fram kynningu á dagskrá viðburðar. Styrkir eru yfirleitt greiddir beint til framkvæmdaaðila. Félagsnet geta einnig óskað eftir aukafjármagni frá stjórn fyrir önnur verkefni.
- Félagsnet geta fundað í húsnæði Visku sér að kostnaðarlausu, í samráði við skrifstofu félagsins.
- Viska kynnir starfsemi félagsneta m.a. á vefsíðu sinni, þar sem félagsfólk finnur upplýsingar um félagsnet og hvernig hægt er að taka þátt í starfi þeirra.
- Félagsnet Visku getur átt aðkomu að umræðu um kjaramál í fulltrúaráði félagsins. Sé þörf á úttekt eða nánari skoðun á kjaramálum félagsfólks í félagsneti getur skrifstofa Visku tekið ákvörðun um að framkvæma slíka úttekt.