Hvernig á að senda inn skilagreinar?
Launagreiðendur þurfa að senda upplýsingar um iðgjöld til aðildarfélag og sjóða með reglubundnum hætti.
Launagreiðendum ber að senda inn skilagreinar fyrir hvern launamánuð með sundurliðun á öllum iðgjöldum fyrir hvern launþega merkt réttu stéttarfélagsnúmeri til innheimtu BHM, fyrir gjalddaga eða 15. dag hvers mánaðar. Kröfur stofnast í netbanka þegar skilagrein hefur borist nema óskað hafi verið eftir öðrum greiðslumáta eða ef ávallt hefur verið millifært. Eigi greiðsla sér ekki stað fyrir eindaga eru reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags. Gjalddagi er 15. dagur næsta mánaðar eftir launamánuð en eindagi síðasti virki dagur gjalddaga mánaðar. BHM óskar eftir að fá allar skilagreinar sendar með rafrænum hætti.
- Senda á skilagrein rafrænt með XML (sjá slóð á skilagrein.is) eða með SAL færslu á netfangið skilagreinar@bhm.is.
- Launþeginn verður að vera merktur með réttu stéttarfélagsnúmeri, réttum innheimtuaðila (BHM 2999) og gildum færslutegundum svo hægt sé að senda rafrænt.
- Ekki er þörf á notendanafni og lykilorði (veflykli) og úthlutar BHM engum lykilorðum.
- Senda þarf inn skilagreinar fyrir gjalddaga þe. 15. hvers mánaðar.
- RAFRÆNT SKILAGREINAFORM
- Sjálfstætt starfandi og smærri fyrirtæki á almenna vinnumarkaðnum sem ekki skila iðgjöldum inn beint úr launakerfi, geta skilað iðgjöldunum inn í gegnum ofangreint rafrænt skilagreinaform. Formið er einfalt í notkun og birtist útreikningur sjálfkrafa. Notendur þurfa að ákveða í hvaða sjóði þeir ætla ekki að greiða með því að taka hakið af við þá sjóði sem þeir vilja sleppa. Athugið að færa þarf inn upphæð í báða launadálka þar sem vísindasjóður er reiknaður af dagvinnulaunum, þó svo að um sömu launaupphæð er að ræða. Einnig er nauðsynlegt að fara vel yfir upplýsingarnar áður en ýtt er á „senda“-hnappinn. Kvittun sendist á uppgefið netfang þegar iðgjöldin hafa verið send.
- Rafræna skilagreinaformið er aðeins fyrir launþega á almennum vinnumarkaði og því er ekki hægt að fylla formið út fyrir launþega á opinbera markaðnum.
- Fylla þarf út skilagreinaformið mánaðarlega, þ.e. fyrir hvern launamánuð.
- Ekki er tekið við núll skilagreinum, ef engar tekjur eru tiltekinn mánuð er skilum sleppt fyrir þann mánuð.
- Gjalddagi er 15. dagur næsta mánaðar á eftir launamánuði.
- Eindagi er síðasti bankadagur gjalddaga mánaðar.
Eigi greiðsla sér ekki stað fyrir eindaga eru reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.
Ef greitt er með millifærslu reiknast dráttarvextir eftirá en ef greitt er með kröfu reiknast dráttarvextir við greiðslu.Tvær greiðsluleiðir eru mögulegar:
- Greiða kröfur sem myndast í netbanka launagreiðanda.
- Greiða með millifærslu inn á bankareikning BHM: 0515-26-550000 kt. 630387-2569.
BHM mælir með að kröfur séu greiddar í stað þess að millifæra.
Ef krafa hefur ekki stofnast í netbanka getur eftirfarandi átt við:
- skilagrein hefur ekki borist til innheimtuaðila BHM.
- launagreiðandi hefur ávallt millifært og þarf að óska eftir að fá kröfu í netbanka.
Innheimtuferli hefst ef iðgjöld eru ógreidd á eindaga og ef ekki hefur verið samið um greiðslufrest.
Ferlið er eftirfarandi:
- Aðvörun send 15. dag fyrsta mánaðar eftir eindaga, þar sem gefinn er 15 daga frestur.
- Innheimtubréf sent 5. dag annars mánaðar eftir eindaga, þar sem gefinn er 15 daga frestur.
- Vanskil send Inkasso til innheimtu eftir lokafrest innheimtubréfs.
Dæmi ef ágúst-iðgjöld eru í vanskilum:
- Gjalddagi er 15. september.
- Eindagi er 30. september.
- Aðvörun send 15. október með fresti til 30. október.
- Innheimtubréf sent 5. nóvember með fresti til 20. nóvember.
- Vanskil send Inkasso til innheimtu þegar frestur er liðinn.
- Netfang: skilagreinar@bhm.is
- Póstfang: Bandalag háskólamanna, Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 28. janúar 2025.