Jafnlaunavottun
Fyrirtækjum og stofnunum af tiltekinni stærð ber skylda til að undirgangast jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu.
Jafnlaunavottun
Jafnlaunavottun er eitt þeirra verkfæra sem notuð eru til að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012.
Jafnlaunavottun tekur til fyrirtækja og stofnana þar sem 25 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli.
Markmið jafnlaunastaðalsins er að auðvelda atvinnurekendum að koma á og viðhalda launajafnrétti kynjanna á vinnustað sínum með því að setja upp gæðastjórnunarkerfi sem tryggi að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Jafnlaunastaðallinn var búinn til í samstarfi aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda.
Staðallinn er aðgengilegur hjá Staðlaráði Íslands.
Jafnlaunastaðfesting
Fyrirtæki eða stofnun þar sem 25–49 starfa að jafnaði á ársgrundvelli hefur val um að gangast undir jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu sem Jafnréttisstofa veitir.
Jafnlaunastaðfesting er staðfesting Jafnréttisstofu á því að lögð hafi verið fram gögn sem sýna fram á að launakerfi fyrirtækisins eða stofnunarinnar og framkvæmd þess mismuni ekki starfsfólki í launum á grundvelli kyns.
Sjá nánar reglugerð um framkvæmd jafnlaunastaðfestingar og eftirlit Jafnréttisstofu.
Sjá einnig á heimasíðu Jafnréttisstofu.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 18. júlí 2024.